|
|
02.04.2009 21:00:31 / Hulda
ekki nóg með að maður eldist og ömmur og afar eldist og fastir punktar tilverunnar breytist heldur er Guiding Light víst að hætta í framleiðslu. Þetta eru vondar fréttir. Þótt ég hafi ekki horft á nokkur ár hefur systir mín tekið við og gefur mér reglulega fréttir af ættingjum mínum í Springfield. Þegar ég hætti að horfa var Reva Shane nýfundin eftir að hafa verið týnd á Ítalíu í 5 ár. Hún kom tilbaka sem draugur einhverra hluta vegna en var svo hætt að vera draugur þegar ég flutti til Svíþjóðar. Nú hef ég frá áreiðanlegum heimildarmönnum heima að Reva hafi dáið aftur en lifnað við sem 18 ára klón...þetta verður bara betra og betra  Ekki nóg með að ég geti ekki lengur horft á Gædó heldur er Dr. Phil horfinn úr lífi mínu því mínar dönsku sjónvarpsstöðvar sína hann ekki. Þetta er grimm veröld. Annars erum við hress hérna á Dragør, sumarið er að koma og stefnir í 17 gráður um helgina. Við erum á leið til Jótlands í skírn og að hitta verðandi tengdaforeldra mína og það verður sgu dejligt. Verkefnið mitt gengur vel og danskan er öll að koma til. Veit ekki hvort einhver les þetta en þetta er amk ágætis upprifjun fyrir mig ef ég vil rifja upp gamla tíma seinna meir.
»
09.03.2009 15:40:04 / Hulda
...og fór eitthvað að þvælast um þetta blogg og fann blogg sem ég skrifaði 9.mars 2006, þ.e. akkúrat fyrir 3 árum. Lítið blogg um ferðalag sem ég fór í með Palla Heimis til Lundar að heimsækja Halla og Helgu og komin c.a. 5 mánuði á leið. "Jæja, komin heim úr ógó skemmtilegri ferð út. Stutta útgáfan af ferðasögunni er að það var náttúrlega hrikalega gaman, það var ógeðslega kalt og ég át hræðilega mikið af muffins og drakk skelfilega mikið af kaffi og slappaði af eins og ég fengi borgað fyrir það. Svo er ég orðin geðveikt feit en ekki jafn rosalega feit og Helgus sem hélt hún hefði misst vatnið í gær " src="/images/smileys/icon_razz.gif" /> Svo voru Palli og Halli skemmtilegir að vanda og Hostel er ógeðslega léleg mynd. Ferðasögu lokið " src="/images/smileys/icon_wink.gif" />"
Svona var það bloggið en það fékk mig til að hugsa um hversu mikið lífið getur breyst á stuttum tíma. Nú, akkúrat 3 árum seinna sit ég í tölvustofunni í húsinu mínu í Dragør Danmörku. Barnið sem var í maganum á þá verðandi einstæðri móður situr næstum 3 ára inni á baði og skoðar fæðingarbletti á sér, ég er flutt til Lundar, búin með stærsta hluta námsins og flutt þaðan aftur og farin að búa með Andersnum mínum, Dana/Finna sem ég kynntist í Svíþjóð. Er þetta ekki ágætt á 3 árum?
Það er amk gott að geta litið 3 ár aftur í tímann og fengið á tilfinninguna að lífið hafi bara farið upp á við síðan þá og stefni vonandi enn hærra 
Yfir og út
»
13.01.2009 17:24:12 / Hulda
Smá spjall hérna. Það er of mikið í gangi þessa dagana; undirbúningur flutninga til Köben, þar byrjar svo aðlögun á nýjan leikskóla, ég er að klára kúrsana mína og að vinna í að fá draumalokaverkefnið. Nú svo er alltaf gaman að fixa peningamál þegar peningar eru fastir heima eða verðlausir og svo framvegis. Eftir nokkrar vikur get ég eflaust komið inn með margar fréttir þegar allt búið er að púsla öllu saman og lífið orðið eðlilegt aftur. Eina sem ég ætla að tala um núna er hvað ég á frábæra stelpu. Var á leikskólanum í dag í foreldrasamtali og hún fær alltaf toppeinkunn stúlkan. Fullt af hlutum sem ég gæti montað mig af en það sem gladdi mig mest var að fóstran hennar sagði það yrði eflaust ekkert mál fyrir hana að skipta um leikskóla því hún ætti svo auðvelt með að eignast vini. Mér finnst það ótrúlega mikilvægt fyrir skottið og er já, ánægðust með að hún sé svona félagslynd á leikskólanum. Jú, eitt enn. Við Anders erum að spá í eftir einhverjar vikur að starta einhverju sameiginlegu fréttabloggi með myndum og flottheitum sem hann sér um, ég nenni bara að skrifa  Þannig að þá getur fólk fylgst með okkur, okkur finnst þetta fín hugmynd þar sem fjölskyldurnar okkar eru dreifðar um Ísland, Danmörku og Finnland og svo eru vinir í Svíþjóð og víðsvegar um heiminn. Planið er því líka að skrifa á 4 tungumálum...sjáum til hvernig það gengur. En nánar um það síðar...yfir og út
»
30.11.2008 16:18:23 / Hulda
Við mæðgur erum komnar í jólaskap. Það er ótrúlegt hvað maður endurupplifir jólatilhlökkunina í gegnum börnin sín. Rakel er reyndar í það yngsta til að hreinlega að fatta að hlakka til en hún er þó farin að fatta ýmislegt. Farin að tengja saman jólasveina, skemmtanir og sælgæti, jólatré og gjafir og fleira. Ég fór í gær í Akademiska bokhandeln sem er besta bókabúðin í Lundi og hægt að dvelja þar tímunum saman. Ég keypti jóladagatal með myndum sem Rakel er núna búin að festa upp á vegg með kennaratyggjói og bíður spennt eftir að fá að byrja að opna í fyrramálið. Á morgun ætlum við líka að byrja að horfa á Jóladagatal sjónvarpsins sem manni fannst nú eiginlega betra en jólin á yngri árum og ég er bara ansi spennt. Tvær smákökusortir eru komnar í dunka og aðventuljósið í gluggann. Hvort það verði frekari jólaskreytingar settar upp er óljóst þar sem við verðum ekki hér um jól en það er amk kominn smákökuilmur í húsið. Við erum sem sagt komnar í jólaskap við mæðgur og ætlum að njóta desembers í botn!
»
19.11.2008 14:38:37 / Hulda
Sit hérna í skólanum og bíð eftir kennara sem þarf að taka við 4 punktum af vegprófíl hjá mér. Hann hefur hinsvegar verið í kaffi í 25 mínútur eins og sönnum Svía sæmir, það er ekkert hægt að taka stuttar pásur eða drífa hlutina af heldur vera í hálftíma að henda í sig kaffibolla og sitja í skólanum til 17 í staðinn. Það vantar stundum pínu íslenskt mentalítet hingað í Svíaríki...ekki of mikið samt! Skólinn er annars alveg ótrúlega fínn. Fyrsta skiptið síðan í menntó sem ég hef haft áhuga á því sem ég geri í skólanum. Veit ekki hvað það var en bs-inn ól á einhverju þunglyndi hjá mér, mikið ógeðslega fannst mér það oft leiðinlegt nám með lélegum kennurum og vitlausri kennsluaðferðafræði. Margt fínt auðvitað líka, td Kínaferðin, hún var mjög bjartur punktur á ferlinum þar  Rakel er orðin hress og mætt á leikskólann og er það vel. Hún hefur verið pínulítil mömmustelpa í þessa 3 daga sem hún hefur mætt og sagt á hverjum morgni: Rakel vill ekki fara á Humlebo, ég er lasin! við litlar undirtektir móðurinnar. Svo er hún glöð allan daginn þar og vill helst ekki koma heim stundum. Nú er bara mánuður akkúrat í heimkomu og það verður svo gott. Hlakka til að geta setið í mömmusófa með kaffibolla og slúðrað með mömmu, hitt ættingja og vini og farið í jólaboð og allt það. Anders kemur svo yfir nýár svo það er eins gott að það fáist einhver gjaldeyrir í að flytja inn flugelda. Ég er ekki búin að tala svo lítið um hvað það er geggjað að vera á Íslandi yfir áramótin og bjóst ekki við kreppuáramótum. Fram að jólum er svo tiltölulega mikið um að vera. Skólinn er ansi fyrirferðarmikill hjá mér en hann klárast 17.desember. Það er jólaball í sunnudagaskólanum í Lundi 6.des held ég og 12.des förum við Anders í tívolí með foreldrum hans og einhverjum félögum á árlegan hitting þar sem er borðaður góður matur og drukkin góð vín. Í enda nóvember er svo víst djamm hjá stelpunum í Lundi svo maður þarf ekki að kvarta yfir því að hafa ekkert að gera. Svo eru flutningar náttúrlega stöðugt í gangi. Við Rakel kveðjum Lund 1.febrúar og flytjum til Köben eða réttara sagt Dragör á yndislegan stað. Nú erum við að flytja Andersdót smám saman úr hans íbúð og svo í janúar pakka ég svo tíminn flýgur. Mér fannst á tímabili dálítið erfitt að hugsa um að fara frá Svíþjóð en nú er ég alveg komin yfir það og hlakka til. Jæja, kennarinn kominn, yfir og út
»
12.11.2008 16:08:18 / Hulda
Jæja, þá eru veikindi á bænum byrjuð. Rakel byrjaði á að fá magapest og var með uppköst og niðurgang í 3 daga og smitaði okkur Anders bæði svo eftir að hún hresstist slógumst við um aðgang að baðherberginu næstu 2 daga á eftir. Svo var hún frísk í einn dag en svo vaknaði hún með hita og hefur verið að ná sér af víruspest núna í tæpa viku. Fjör... Eftir allt veikindabaslið síðasta vetur sögðu læknarnir að þessi vetur yrði væntanlega skárri en þó gæti það orðið svo að hún tæki annan slæman vetur, ég ákvað að heyra ekki þann möguleika en nú hafa þessi orð rifjast upp og ég fæ bara hroll ef þetta er forsmekkurinn að því sem koma skal. Lýsisflaskan hefur verið dregin upp og ullarföt og gamaldagsmatur og nú skal reynt að halda henni frískri. Annars búið að vera veikindafrí frá því í byrjun apríl svo maður er búinn að fá pásu. Djöfuls kuldi....þá byrja þessar leikskólapestir aftur  Ég er í hópverkefnum í skólanum og sumir þar eru aðeins yngri en ég og eiga engin börn og eru single og djamma út í eitt og þeir eru svo engan veginn að skilja að maður sé mamma með veikt barn og stundum komi eitthvað uppá eða maður verði að læra um nætur eða álíka. Verður gott að klára kúrsa um áramót og þurfa þá bara að díla við sjálfa mig... Að öðru skemmtilegra. Pabbi Anders verður sjötugur núna um helgina og af því tilefni keyrum við til Jyllands á föstudaginn og verðum þar yfir helgina. Rakelin verður pössuð á laugardaginn af vinafólki sem á tvö börn og hund svo hún verður vonandi hress meðan við förum í afmælið. Verð að segja að ég hlakka sjúklega til. Er á hóteli, fínn matur, hljómsveit, og ræður og minn maður er veislustjóri  ...gaman að verða vitni að því. Annars er svona mest lítið að frétta. Næsti mánuður verður erfiður skólalega en svo er líka jólafrí. Ég er bara mest hrædd um að önnin fari í eitthvað veikindaklúður því ég má svo innilega ekki við því að útskrifast ekki í vor....garg....krossa putta. Það eru um 20 heimsóknir á dag á síðuna en enginn kommentar..hvað með að segja hæ?
»
05.11.2008 11:48:52 / Hulda
Lenti í dálitlu sem mér fannst fyndið um daginn. Málið er að nú fer þessu mastersnámi mínu að ljúka og í tilefni af því fór ég að hitta svona námsráðgjafa til að reikna saman einingar og sjá hvort ég gæti ekki byrjað á lokaverkefni bráðum. Ráðgjafinn fór í gegnum allan ferilinn minn og komst að þeirri niðurstöðu að ég myndi klára alla kúrsa um jólin, byrja á verkefni í janúar og klára í maí. Ég var hæstánægð með það og fór heim. Í fréttunum sama kvöld var svo óvenju mikið talað um efnahagslega klúðrið á Íslandi í fréttunum á einni stöð og dregin upp ljót mynd af ástandinu heima. Morguninn eftir fékk ég svo e-mail frá ráðgjafanum þar sem hún sagðist hafa farið að skoða þetta betur og ráðfært sig við aðra konu og þær hafi orðið sammála um það að inn í ferilinn minn vantaði sárlega einn grunnkúrs í hagfræði! Ég yrði því að taka einn svoleiðis samhliða lokaverkefnisskrifum. Ég veit ekki um neinn annan Íslending sem hefur fengið þessa kröfu á sig því hagfræði tengist lítið inn á vegagerð og umferðarmál....spurning hvað liggur að baki?
»
19.09.2008 14:33:41 / Hulda
Þar sem vinir mínir hafa stöðugt gólað í kommentakerfið að ég verði nú að koma með fleiri fréttir og þar með yljað mínu sænska hjarta ætla ég að koma með fréttatilkynningu. Ég er búin að panta far heim um jólin. IcelandExpress sendi mér e-mail með þessu rosa tilboði á miðum sem fólst nú aðallega í því að ég þurfti ekki að saga af mér nema annan handlegginn til að borga og ég verð sem sagt heima 19.desember til 8.janúar. Nú geta allir góðir menn glaðst....og kommentið svo sokkarnir ykkar.
»
27.08.2008 20:06:59 / Hulda
Já, ég er enn á lífi þótt ég hafi ekki skrifað hér inn í 2 mánuði eða svo. Ég er búin að vera svo upptekin við að njóta sumarsins að allt annað hefur setið á hakanum. Þetta sumar hefur klárlega verið það besta sem ég hef upplifað. Fyrir það fyrsta var ég ekki að vinna í sumar heldur í fríi með Rakel. Í annan stað er ég búin að ferðast meira en eðlilegt getur talist. Hér kemur smá lýsing á sumrinu.
Júní: Júnímánuði var eytt í Lundi. Rakel var á leikskólanum svo ég slappaði af á milljón, fór í marga marga lönsa með kunningjum og vinum, las krimma, lá úti í sólbaði og eldaði lúxusmáltíðir flest kvöld eftir að hafa dútlað mér í búðinni lengi hvern dag. Rakel hafði það rosa gott á leikskólanum og ekkert vit í öðru en að hafa hana þar að leika úti í sólinni í stað þess að hanga heima yfir mér alla daga. Hún var þó alltaf bara stutta daga og svo vorum við saman úti í sundi eða að leika við eitthvað annað eftir að hún kom heim. Tveir hópar af gestum komu líka til okkar í júní. Fyrst kom bróðir minn í viku. Það var æði að hafa hann og við chilluðum (eins og hann myndi orða það) stöðugt, fórum á flakk í Danmörku þar sem við enduðum í fimmtugsafmæli hjá dönskum kalli, flökkuðum um Lund og lékum náttúrlega töluvert við Rakel. Hún NB dýrkar litla bróður og ég mátti varla vera með að leika þegar hann var hér. Hún sagði mér hreinlega að fara inn. Stuttu eftir að Brósi fór heim mætti föðursystir mín með 6 ára dóttur sína á svæðið og það var alveg frábær heimsókn. Fórum í tívolí í Köben, flökkuðum um Skán, áttum æðislegan dag í Målmö og kjöftuðum með rauðvín á kvöldin. Bara gaman og Rakel svona ánægð að fá stóru frænku í heimsókn. Júní var sem sagt bara æðislega notalegur. Júlí:Í júlí fórum við mæðgur heim til Íslands og vorum þar í mánuð. Fyrstu 10 dagana vorum við þar tvær, næstu 10 daga var Anders með okkur og svo vorum við aftur tvær síðustu 10 dagana. Við notuðum tímann vel í að hitta alla sem okkur þykir vænt um; vini og ættingja. Bjuggum hjá mömmu og pabba og lifðum í vellystingum og höfðum ekki áhyggjur af neinu nema hvaða skemmtilegheitum við ættum að taka upp á næsta dag. Þegar Anders var með okkur heima fórum við skötuhjú tvö norður í land í 4 daga og flökkuðum um Akureyri og Mývatn. Gengum mikið, fórum í jarðböð, sjóstangaveiði, héngum á antiksölum, bókabúðum og kaffihúsum og slöppuðum gengdarlaust af. Við fórum svo öll þrjú á Kirkjubæjarklaustur að hitta Helgu, Halla og Þorbjörgu í 2 nætur og áttum æðislegan tíma þar með miklu spjalli, góðum mat, siglingu á Jökulsárlóni og ferð í Skaftafell. Síðustu 10 dagana heima fórum við Rakel svo með stórfjölskyldunni í sumarbústað, vorum í sundi, Fjölskyldugarðinum og hittum önnur börn. Rakel Júlíana varð svo 2 ára 25.júlí og í tilefni af því var haldin heljarinnar veisla sem tókst vel til og pakkaflóðið var gengdarlaust. Ágúst: Í byrjun ágúst fórum við mæðgur aftur heim til Svíþjóðar. Vorum þó bara heima í 10 daga því þá hófst 10 daga ferðalag um Finnland. Við vorum mestallan tímann í sumarhúsi fjölskyldu Anders sem er eiginlega bara himnaríki á jörðu. Húsið stendur við lítið stöðuvatn og uppi í lítilli hlíð. Tíminn var notaður í að heimsækja finnsk/sænska part fjölskyldunnar hans, veiða og síðast en ekki síst kynntist ég fyrir alvöru finnskri sauna (eða bastu eins og sauna heitir upp á sænsku) menningu. Við hliðina á húsinu er bastu-húsið. Á kvöldin var farið í bastu (kynjaskipt eða paraskipt svo það sé á hreinu ), setið og spjallað á bekkjunum í 120 gráðum og svo hleypur maður niður að vatninu (c.a. 100 metrar), hendir af sér handklæðinu og stingur sér út í 18 gráðu heitt vatn á adamsklæðunum einum fata. Ég hef aldrei prófað neitt þessu líkt áður og get ekki annað sagt en að manni líður eins og maður sé lifandi, held það lýsi tilfinningunni best. Að fara úr 120 gráðum í 18 og setjast svo í handklæði upp á bryggju og spjalla þar og finna húðina hálfbrenna er alveg ótrúleg tilfinning. Annar hápunktur Finnlandsferðar var 3 nátta ferð sem við Rakel og Anders fórum í. Við flökkuðum um vesturhluta Finnlands og vorum við landamæri Rússlands hluta af ferðinni. Þetta var nýr heimur, mjög fallegt en rússnesku áhrifin leyndu sér ekki. Gistum á gistiheimili eina nótt og svo í litlum sveitakofa í tvær nætur og eyddum dögunum í að veiða, synda og skoða okkur um. Alveg frábær ferð. Við komum svo öll heim í gær og það er voðalega gott að vera komin aftur í íbúðina sína í Lundi. Hér er enn sumar og veðurspáin gerir ráð fyrir 20 gráðum næstu dagana.
Lokapunktur sumarsins verður svo um helgina en þá förum við að hitta vinapar í Bornholm. Keyrum fyrst klukkutíma til Ystad hérna á Skáni og tökum svo ferju yfir á Bornholm og skellum upp tjaldi. Planið er að eyða helginni þar, liggja á ströndinni, leigja hjól, grilla og skemmta okkur.
Á mánudaginn byrjar svo skólinn og venjulega lífið og það verður fínt líka. Mörg verkefni liggja fyrir en líka skemmtilegheit. Von er á gestum og ýmislegt á döfinni sem verður sagt frá síðar.
Góðar stundir 
»
06.06.2008 23:03:42 / Hulda
Jæja, nú setur maður inn eina djússögu. Ekki djúsí sögu heldur djússögu. Þannig er mál með vexti að þegar hún litla mín var veik í vetur missti hún nokkur hundruð grömm. Hún er nú svo nett að þetta var ekki nógu gott mál svo að ég heimtaði fund með næringarfræðingi til að koma henni á rétt ról. Í hönd fór allskonar útreikningar á matarinntöku og þótt það hafi komið fínt út að flestu leyti ákvað næró að hún ætti að hætta að drekka venjulegan safa og drekka svona næringarsafa í staðinn. Ég fékk prufur heim til að gefa að smakka og Rakel drakk þetta með bestu lyst (ef það heitir djús er það drukkið). Eftir að ég tilkynnti næró að daman sætti sig við sullið fékk ég lyfseðil heim og apótekið sendi svo sms og sagði ég mætti sækja djússkammtinn sem var ávísaður á mig. Ég hjólaði næsta dag út í apótek með seðilinn og ákvað að skella gumsinu bara í körfuna og ef í hart færi afganginum í barnastólinn. Þegar ég mætti í apótekið sagði konan að hún ætlaði bak við að ná í skammtinn minn og svo kom hún aftur út með heilt bretti af kössum í eftirdragi og sagði: Gjössovel, hér er djús fyrir hálft ár. Ég spurði hana nú hvort hún væri að grínast, ég væri á hjólinu mínu og hvar ég ætti eiginlega að koma þessu fyrir og hvort ég gæti ekki fengið hluta af þessu heim. Svarið við því var nei, ég átti þetta allt og átti að taka þetta allt heim. Ég hjólaði aftur heim og leitaði á náðir Heiðu næsta dag að skutla mér á bílnum sínum að ná í þetta og fór að rýna í lyfseðilinn og sá að þetta voru 150 flöskur af djús takk fyrir. Við Heiða vorum eins og flutningamenn að hlaða skottið með kössum og svo bar ég þetta allt heim og hálffyllti gestaherbergið af djúskössum. Sem betur fer kostaði þetta næstum ekkert (nema fyrir sænska skattgreiðendur múhaha) svo ég hugsaði mér mér meðan ég tróð þessu í tóman fataskáp að Rakel gæti þá drukkið þetta mín vegna árum saman fyrir þennan prís Skellti svo 16 flöskum inn í ísskáp eftir mikla skipulagsvinnu og ákvað að taka bara húmorinn á þetta. Nýjasta fréttin af stóra djúsmálinu er svo að dóttir mín neitar að drekka þetta! Fannst ein flaska góð en svo bara búið. Ég lái henni ekki þar sem þetta er eins og Sanasól á bragðið ef einhver man eftir því vítamíni, fínt ein matskeið en kannski ekki 4 desilítrar á dag. Nú hef ég þynnt sullið út með vatni og gefið henni (reiknast til hún fái samt fleiri hitaeiningar en með venjulegum djús miðað við hlutföll) og miðað við útreikninga verður hún fram í mars á næsta ári að drekka úr fataskápnum. Maður ætti kannski bara að fara að selja þetta á barnalandi fyrir íslenskt verð?
»
28.05.2008 18:20:48 / Hulda
Skólinn er loksins búinn eftir vetur sem ég hélt stundum að ætlaði ekki að taka enda. Eftir mikinn lærdóm, 7 pestir í röð hjá dótturinni (ég taldi), 3 pestir hjá sjálfri mér og fleiri andvöku/lærinætur en mig langar að rifja upp er þetta búið. Náði að taka 100% nám og gekk vel í öllu svo það er stór steinn farinn í burtu úr maganum  Ég er sem sagt komin í sumarfrí Þetta sumar verður í meira lagi spes, engin vinna. Verð hér í Svíþjóðinni næsta rúma mánuðinn, svo heim og svo aftur út og svo Finnland. Næsta mánuðinn koma svo tveir hópar af gestum svo það er nóg að gera. Þessa dagana (síðustu tvo) hef ég bara notið þess að vera í fríi, legið úti á túni með sakamálasögu, farið í bæinn og drukkið latté og hjólað út í náttúruna, æðislegt. Var einmitt að hugsa í dag hvað ég væri heppin að geta leyft mér þetta eitt sumar versus að fara heim og vinna á verkfræðistofu og fá ekkert frí. Hugsaði þetta á leiðinni heim frá Malmö í dag í Heiðubíl, með topplúguna opna, keyrandi gegnum Skán í hlírabol og stuttu pilsi og bara skemmtun framundan. Við mæðgur eigum sem sagt gott þessa dagana. Komum heim í kringum 7.júlí og væri gaman ef fólk byrjaði að panta tíma svo maður sjái hverjum þykir enn gaman að hitta mann 
»
01.05.2008 22:16:49 / Hulda
Ja, nu skal skrifad her inn. Er ad aefa mig ad skrifa a danska lyklabordid mitt, eg hata thad. Fartolvan min tok upp a thvi um daginn ad krassa a mig og er nuna i margra vikna vidgerd i Kanada, thurfti ad senda hana thangad thar sem hun er keypt thar. Sem betur fer reddadi Skandinavi mer lyklabordi til ad nota thar til eg fae hana aftur  Thad hefur ymislegt drifid a dagana, vid maedgur erum nykomnar aftur heim fra Islandi thar sem vid vorum i 10 daga, adallega til ad vera vidstaddar fermingu litlu systur sem tokst svona vel til lika. Thegar vid komum aftur heim var svo bara komid sumar. Vid lentum i Køben a thridjudagskvold um halfsjo i 18 stiga hita takk fyrir. Allt ordid graent og bara sumarfilingur. Eg for i dag i risastora blomabud og keypti ker med blomum til ad hafa a svolunum hja mer. Er ordin massiv blomakelling. Hef nu aldrei haft mikinn ahuga a jurtarikinu thannig thar til vid maedgur duttum i margra vikna veikindapakka sem eg hef nu skrifad um herna. Tha tok eg upp nytt ahugamal til ad stytta mer stundir heima ad halda lifi i pottaplontum. Keypti blomanaeringu og eg veit ekki hvad og hvad. Her er bara kominn frumskogur og eg gekk svo langt ad bidja hana Onnu a nedri haedinni ad vokva fyrir mig medan eg var a Islandi. Naesta mal a dagskra er ad starta matjurtagardi a svolunum...madur er kannski farinn ad eldast? Rakel fer a leikskolann a morgun og nu krossa allir putta ad daman haldist frisk. Eg tharf ad hafa hana friska ut mai amk til ad geta nu klarad onnina med stael en ekki i alltof mikilli kaffidrykkju og volaedi allar naetur  Sumarid verdur svo bara yndislegt. I juni kemur brodir minn til min i 10 daga a milli tonleikaferda sem hann er i og vid munum bokad hafa thad gott. EInhverjar tjaldutilegur a Skani hafa verid planadar og i byrjun juli kemur svo fodursystir min med 6 ara dottur sina i heimsokn i nokkra daga og vonandi fylgir litla systir med. Juli verdur annars a Islandi og svo er planid ad taka viku til 10 daga i Finnlandi i agust med halffinnska Dananum. Svo verdur bara komid haust og tha koma nu hausttilbod svo folk getur flykkst hingad i heimsokn svo eg laeri nu orugglega ekki yfir mig Peningar sumarsins koma fra vinningnum minum i bingolotto sem eg aetla bradum ad fara ad spila eins og brjalaedingur... Hvad annad? Thad var natturlega rosa gaman ad hitta alla a Islandi, hekk a Hresso eflaust meira en heima hja mer og naut thess i botn ad hafa possun. Rakel nennti hvort ed er ekkert ad tala vid mig og naut thess ad lata dekra vid sig 24/7. Ja aetli thetta se ekki nog i bili, spurning um ad fara ad lulla ser, langur skoladagur a morgun thar sem trafikverkefni verdur massad. Sem sagt allt gott ad fretta ur saenska vorinu og endilega kommentid ef einhver er enn ad lesa thetta  ....yfir og ut.
»
12.04.2008 22:51:37 / Hulda
Núna er klukkan í Svíþjóð 00:49 þegar þetta blogg hefst. Undirrituð situr í sófanum á mörkum þess að æla. Ástæða? Þrif á stífluðu klósetti seinasta hálftímann. Sá allt í einu að klósettið var stíflað áðan þegar ég þurfti að pissa. Skildi ekki hvernig það gat skeð því hér búa bara konur og þær stífla ekki klósett eins og sumir strákar sem ég þekki  Allavega, ekkert annað í stöðunni en að tæma vatnið og setja upp gúmmíhanskana og athuga hver djöfullinn væri í gangi. Niðurstaða: Eitt af eldhúsglösum heimilisins (eitt af plastglösunum) var á hvolfi í rörinu og olli stíflunni. Ég þarf að ræða alvarlega við eina næstum 2 ára í fyrramálið...
»
26.03.2008 21:59:39 / Hulda
Veit ekki hvort þessi síða er að deyja...amk hef ég þörf við alkul að blogga þessa dagana svo við sjáum til hvernig fer.
»
28.02.2008 17:48:47 / Hulda
Meira hvað ég get bloggað þessa dagana. Allavega, í dag átti ég alveg ótrúlega nice dag. Við Rakel erum búnar að vera svo geðveikt lasnar og tuskulegar og svo bara lærandi 24/7 að ég bara varð að taka mér smá pásu í hálfan dag og gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Rakel fór nú samt á leikskólann  Allavega, lærði bara í ca 2 tíma í morgun og gerðist svo gróf að fara aftur upp í rúm of sofa til rúmlega 11! Guð minn góður hvað það var gott, hef ekki vaknað seinna en 8 (kannski 8:20) mánuðum saman held ég. Skellti mér svo í vorfíling niður í bæ. Átti erindi í bankann og á tourist information að skoða hvað má gera með foreldrum mínum hérna á Skáni þegar þau koma í næstu viku. Endaði svo á því að skella mér á 1200 kr. klippingu (120 sænskar krónur). Í þetta skiptið varð íraski vinur minn ekki fyrir valinu heldur sænsk gella og ég er bara svona líka fín. Ekkert smá nice að losna við smá af makkanum sem ég er búin að safna í marga mánuði. Náði svo í gelluna mína á leikskólann og við fórum með Elsu og pabba hennar út að leika í klukkutíma. Í kvöld er það svo áframhaldandi slökun, á eitthvað dótarí að horfa á í tölvunni og svo snemma að sofa...því á morgun byrjar lærdómsmaraþonið aftur. Vona þið hafið það gott kæru vinir  ... Huldus
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
|